250 ml rjómi Jarðaber (fersk, fryst eða niðursoðin)
1 plata suðusúkkulaði 250ml rjómi 2 eggjarauður
Marengs: Stífþeyta sykur+eggjahvítur þar til verður mjög þykkt (eins og kókósbolla) og bæta svo lyftidufti og kornfleksi út í og hræra. Setja í 2 hringlótt form (best að klæða með álpappír) og inn í 140* heitan blástursofn í ca. 75 mín.
Þeyta rjóma og bæta í jarðaberjum og setja á milli botna.
Hægt að setja súkkulaðikrem ofan á, en ekki nauðsynlegt. Þá eru eggjarauðurnar fyrst léttþeyttar, svo er rjómanum bætt í og þeytt þar til þykknar og síðan er bræddu suðusúkkulaði bætt í. Lítur þá út eins og krem.
Gott er að baka kökuna degi áður en hún er borin fram og setja hana í ísskáp með rjómanum á milli svo hún verði "mjúk" (ekki setja krem á fyrr en daginn eftir). Daginn eftir þegar búið er að setja krem á má setja hana í frysti í 3-4 tíma og taka út 1 klst áður en hún er borðuð. Þá er hún borin fram hálffryst.